Cintamani Center er samstarfsverkefni Cintamani og tveggja ævintýrafyrirtækja Arctic Adventures og Arctic Rafting (sem í rauninni eru eitt og sama fyrirtækið).

Verslunin sem er staðsett á alþjóðlegri staðsetningu, við hlið Ítalíu og á móti Asíu, að Laugavegi 11, er smekkfull af öll því sem til útivistar heyrir. Við seljum alla línuna af Cintamani hlífðarfatnaði, flíspeysur, öndunarjakka, húfur, hanska og hvaðeina. Því til viðbótar bjóðum við upp á ísalandsins mesta úrval af Scarpa gönguskóm og  Teva sandölum. Annað sem hægt er að rekast hjá okkur eru Black Diamond díóðu höfuðljós, Marmot svefnpokar, Jetboil prímusar, OR legghlífar og hanskar...og svo náttúrulega ofsalega mikið af sniðugu dóti sem virkar þegar veður er vont...og gott...

Sérstaða okkar liggur ef til vill í því að flestir sem vinna hér okkur vinna líka sem leiðsögumenn hjá Arctic Adventures og eigendur verslunarinnar hafa staðgóða reynslu af útivist og ævintýrum. Þú getur því treyst því að við vitum um hvað málin snúast  og gerum okkar ítrasta til að tryggja það að þú komir brosandi heim úr hvaða ævintýri sem er.

Kíktu í heimsókn til okkar á Laugavegi, það er alltaf kaffi á könnunni og nýjar vörur.

Opnunartímar



e4be739039ced6ca.jpg